top of page

Lokahittingur vetrarins

Lokahittingur félaga Skramba eftir veturinn 2025/2026 var haldinn í Golföhllinni 2. maí 2026. Þar hittust félagar Skramba og ræddu komandi sumar og léku svo einn hring í hermi. Skemmst frá því að segja að virðulegur Skrambi Leifur Kristjansson skilaði flestum punktum þann daginn eða samtals 41 punkti. Vetrarmótinu lauk þannig að Haukurinn var efstur ef skoðað er í Trackman kerfinu en starfsmaður Golfhallarinnar var með niðurstöðu á fjölda punkta allra þáttakenda þar sem Þorkell var með flesta punkta. Vetrargolfið hefur verið á tilraunastigi hjá okkur undanfarið og reglur óljósar  en vonast er til að það liggi fyrir áður en farið er af stað vetrarmót 2026/2027.

 

Hér fyrir neðan eru punktar frá fundinum, kannski ekki alveg 41, en allskonar ákvarðanir voru teknar.

Fundargerð 

Fundinn sóttu 12 félagar Skramba, aðalverkefni fundarins var dagskrá sumarsins og aðrir þættir tengdu henni. Dagskráin verður var ákveðin með sama sniði og undanfarið, þ.e. alla fimmtudaga og helmingur þeirra telur til sigurs.

Opnunarmótið verður laugardaginn 16. maí á Leirunni. Á fundinum var ákveðið að gera breytingu á því hvað þá komast margir í holukeppnina og eru 12 efstu sætin sem fara í holukeppnina í stað 14 áður og fjórir í öðru mótinu í stað tveggja áður. 

 

Nú eru breyttir tímar innan félaga Skramba og eru margir okkar á ferðalögum erlendis í byrjun árs, allt framm til apríl loka. Ákveðið var því að festa þriðja laugardag í maí, sem opnunardag sumarsins, og við leikum svo á hverjum fimmtudegi eftir það, allt þar til lokamót verður haldið. Það getur verið breytilegt með lokamótið frá ári til árs en árið 2026 verur það í lok ágúst.

 

Vetrardagskráin 2026/2027 hefst svo í nóvember og er annanhvern fimmtudag. Í umræðu um fyrirkomulag hermamóta kom fram að félagar söknuðu þess að hitta ekki hvern annan yfir veturinn og var ákveðið að við hittumst allir á sama tíma (á fimmtudögum) og verður því ekki lengur opið fyrir leik í eina viku á eftir þeim tíma sem hvert mót fer fram. Vetrardagskránni lýkur svo í lok apríl ár hvert. Eins og áður segir hafa tímarnir breyst og við festum því lokahitting í hermi einnig samhliða árlegum hittingi til skrafs og ráðagerða í lokamóti vetrarins líkt og fram fór á laugardag síðastliðinn.

 

Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á Golfmót kerfinu sem notað var til prófunar í fyrra og er talið að þeir hnökrar sem við stóðum frammi fyrir hafi nú verið leystir. Á fundinum var ákveðið að taka áfram þátt í prófunum á kerfinu og styrkja þannig þróun þess. Ekki má gleyma að það tengist einum félaga okkar til meira en þrjátíu ára og gott að félagar Skramba geti aðstoðað við slíkt. 

 

Þá var farið yfir rekstur síðastliðins árs en ekki hafa allir félagar Skramba staðið skil á greiðslum sínum og hefur staðan ekki verið svona áður.

Fundarmenn voru sammála um að ástæðan sé frekar að menn séu að gleyma sér en að þeir ætli sér að vera í skuld við félaga sína. Fundarmenn ákváðu að innheimta skuli hér eftir fara fram með aðstoð bankans í formi innheimtukrafna með tilheyrandi kostnaði. Þannig gleymi félagar sér ekki.

Ef menn vilja kíkja á stöðuna sína varðandi ógreitt þá er hana að finna hér. Athugið þó að þegar greiðslur berast er þetta uppfært og því ekki í takt við stöðuna hér að neðan eins og hún var fyrir fundinn 2. mai 2026. Þegar þetta er skrifað (5. maí) er staða Ógreitt kr. 181.000.

Rekstur 2025.jpg
Kostnaður utanlandferðar.jpg
  • Twitter Square
  • facebook-square

Skrambi, félag golfáhugamanna - kt. 650497-3259 - Banki 0130 26 12000

bottom of page